Hvað söfnum við.
Við söfnum eftirfarandi flokkum gagna til að Heimilisbókhald virki rétt:
- Reikningsgögn — netfang, nafn og kennimerki fyrir innskráningu með rafrænum skilríkjum
- Fjármálagögn — reikningsyfirlit, færslur, flokkar, budget, eignir og skuldir sem þú sjálf/ur skráir eða flytur inn
- Notkunargögn — tæknilegar logs (villuboð, afköst). Engar notkunarrakningar með þriðja aðila
Staðsetningu, tengiliðum, myndum eða öðru sem ekki tengist fjármálum heimilisins beint.
Af hverju.
Gögnin eru notuð til eins: að veita þér skýra yfirsýn yfir fjármál heimilisins. Engin gögn eru notuð í auglýsingar, seld til þriðja aðila, eða notuð til að þjálfa AI módel sem þjóna öðrum.
Hversu lengi.
Gögn lifa eins lengi og reikningurinn þinn er virkur. Þegar þú eyðir reikningi eyðast öll gögn innan 30 daga, nema þar sem lög krefjast lengri varðveislu (t.d. bókhaldslög).
Réttindi þín.
Samkvæmt GDPR hefur þú rétt til að:
- Sjá öll gögn sem við geymum um þig
- Leiðrétta eða uppfæra gögn
- Flytja gögn í öðru sniði (data portability)
- Láta eyða gögnum (right to erasure)
- Takmarka vinnslu eða andmæla henni
Þú getur nýtt öll þessi réttindi beint í appinu, eða með tölvupósti á hrannar301@gmail.com.
Hafðu samband.
Spurningar um persónuvernd? Sendu á hrannar301@gmail.com. Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).